Fæddur í Reykjavík 14. janúar 1976. Eftir hefðbundna skólagöngu hóf Sigurður bakaranám hjá Bernhöftsbakarí haustið 1992. Lauk hann námi frá Iðnskólanum í Reykjavík vorið 1994 og tók sveinspróf 1996. Haustið 1997 og þar til í desember 1998 stundaði hann nám til meistararéttinda við Hótel og matvælaskólann í Kópavogi og lauk því í desember 1998 í fyrsta útskriftar árgangi skólans. Í framhaldi af því fékk Sigurður meistarabréf í desember 1998. Sigurður lauk námi sem konditor í Chemnitz í þýskalandi með hæstu einkunn "SEHR GUT". Meistari Sigurðar var Ulrich Kleeberg konditormeistari, var Sigurður fyrsti og jafnframt eini nemi hans.
Sigurður tók við rekstri Bernhöftsbakarís 1. janúar 2004. Sigurður hefur lokið fjölda námskeiða á Íslandi sem og erlendis í brauða og kökugerð. Sigurður hefur unnið til fjölda verlauna hérlendis sem erlendis. Sigurður er bæði bakameistari og konditormeistari. Sigurður er formaður Konditorsambands Íslands.
Árið 2022 varð Sigurður Már formaður Landssambands bakarameistara/LABAK og fetaði þar í fótspor afa síns sem var fyrsti formaður LABAK. Sama ár var hann valinn World Confectioner of the Year, æðsta alþjóðlega viðurkenning sem kökugerðarmanni getur hlotnast.
23.október 2023 var Sigurður Már fyrstur manna tekinn inn í „UIBC SELECT CLUB“ sem er alþjóðleg frægðarhöll bakara og kökugerðarmanna. Sigurður var svo sæmdur heiðursmerki UIBC Select Club númer 1.
Sigurður Már var fyrsti íslenski dómari Coupe du Monde de la Boulangerie 2026 sem er stærsta bakara keppni í heiminum.
Sigurður Már er barnabarn Sigurðar Bergssonar bakarameistara.
