MarsipantertaMarsipan- og rjómaterturnar hjá okkur eru frá 8 og upp í 70 manna.   8-25 manna eru kringlóttar en 30 manna og uppúr eru ferkantaðar.  Marsipan- og rjómatertur eru eins að innri byggingu en marsipanterturnar eru hjúpaðar með marsipani. Þær eru síðan skreyttar eftir óskum viðskiptavinarins.

Úr fjölmörgum bragðtegundum er hægt að velja t.d.:

  • Karamellumús með hnetukrókanti
  • Súkkulaðimús með perum
  • Karamellumousse með daim-kúlum
  • Súkkulaðimousse og hinber
  • Jarðarberjamús
  • Sherry og makkarónur
  • Hindberjamousse

Að sjálfsögðu eru margar aðrar bragðtegundir til en þessar eru þær vinsælustu. Best er að hafa samband ef um sér óskir er að ræða.