Um okkur
Handverk og hefð síðan 1834

Í hjarta Reykjavíkur, á Klapparstíg 3, starfar elsta bakarí landsins.
Síðan 1834 höfum við verið hluti af lífi Reykvíkinga og Íslendinga allra. Í rúmlega 190 ár höfum við bakað brauð og kökur fyrir brúðkaup, fermingar, afmæli og allar hinar mikilvægu stundir í lífi fólks.
Í gegnum kynslóðir höfum við gætt þess að varðveita þær bestu hefðir í bakaraiðn og kökugerð, á sama tíma og við höfum þróað og endurnýjað vörurnar okkar. Niðurstaðan er fullkomin blanda af gömlu og nýju, handverki og hefð.
Meistarar
Bakarameistarar Bernhöftsbakarís frá upphafi
Smellið á nöfnin til að fá stutt æviágrip.
Opnunartímar
Virkir dagar7:30 - 17:00
Helgar8:00 – 16:00
Einungis er lokað á eftirtöldum dögum:
- Nýársdag
- Föstudaginn langa
- Páskadag
- Hvítasunnudag
- Sunnudag og Mánudag um Verslunarmannahelgi
- Jóladag og Annan í jólum
Pöntunar- og upplýsingasími 551-3083


